ok ég er opinberlega versti bloggari í heimi
En Lísa fór e-d ad finna ad tví ad ég væri ekkert búin ad blogga, tannig ad ég verd víst ad fara ad standa mig betur... ![]()
En já tad á sem sagt ad vera sumar hérna úti...! Hef greinilega misst af tví...! En er samt búin ad skemta mér alveg hreint konunglega í sumar. Droplaug vinkona flutti hingad med sínum vinkonum Silvíu og Hørpu (sem eru náttlega vinkonur mínar núna
) og vid høfum skemmt okkur alveg hreint frábærlega saman
Vid erum búnar ad fara á djammid og træda kaffihúsin og Harpa er búin ad koma mér upp á Barreso kaffi, suss ekki gott tad...
Svo er einn vinur teirra sem vid høfum tekid ad okkur hérna;) hann heitir Hrólfur og vid erum einmitt búin ad plana svona túrista dag med honum, tar sem vid ætlum ad klæda hann upp í svona ekta túrista múdderingu, Stuttbuxur, sandalar og helst vera í sokkum sem eru togadir upp á midja kálfa, svo verdur hann náttlega ad hafa svoldid stóra myndavél hangandi um hálsinn. JIII hvad drengurinn verdur lekker
En já ég keypti mér mida á Hróarskeldu, var tar í 2 daga og kom svo bara heim og GAT hreinlega ekki meira af tessu ógedi. Èg fór bara med stelpunum og Hrólfi og 2 vinum hans á djammid í stadin, bædi føstudags og laugardagskv. og verd ég bara ad segja ad tetta voru 2 skemtilegustu djømm sem ég hef farid á...
á føstudagskvøldinu komu Aron og Lísa ad hitta okkur á Hótel barnum mínum, og ég ætla ad vona ad tau hafi skemmt sér eins vel og ég
En annas er tad ad frétta ad ég er ad koma í viku heimsókn til Íslands núna á tridjudaginn og VÀ hvad mig hlakkar mikid til
Èg er líka búin ad segja upp vinnunni minni og er ad fara ad vinna í skóbúd (sem selur logo 69 merkid) í Fields...Hlakkar ótrúlega mikid til ad fá ad vakna á edlilegum tímum ekki kl 5 á morgnanna!!!
en ég ætla ad láta tetta duga í bili.... Èg skal reyna ad blogga meira, lofa engu en get allavega reynt... og já ég er ad setja inn fullt af myndum einmitt í augnablikinu... endilega kíkjid á tær
see ya
Frída
okok ég er kanski smá léleg að blogga.... :s
hmmhmm ok ok hvad er búið að gerast .... ![]()
ég er alveg að mygla í vinnunni minni... það er einn heimskasti maður sem ég veit um að vinna með mér. Hann heitir Sonny og er uppvaskarinn okkar, ok hann hringdi sig inn veikan fyrir 2 vikum síðan og sagðist hafa fengið ofnhreinsinn upp í sig þegar hann var að þrífa ofninn í vinnunni eftir einn sunnudaginn, en málið er að hann hefur aldrei snert ofnhreinsi og þreif hann einmitt ekki þennan sunnudag sem hann vill meina. Svo viku eftir að hann hringir sig inn veikann fáum við e-mail frá scandic hóteli í Sudhavn, þau spurðu hvort hann væri starfsmaður á okkar hóteli því þá hafði hann, aulinn, pantað hótelherbergi eina nótt (meðan hann var veikur btw.) en var ekkert með neitt meðlimskort til að fá afslátt....!!!! HEIMSKA og svo skliti aulinn ekkert í því að hann væri rekinn.... gæti haldið áfram með endalaust margar sögur af heimskunni í honum...
annars er voða lítið að frétta af mér er bara búin að vera að vinna eins og brjálæðingur ekkert djamm...
Er reyndar búin að vera ein heima í viku núna því að ella og kristian fóru til spánar með pabba ellu og family...! frekar nice að vera ein...
mamma, pabbi, andri, ketill, þórey, sólon, natan freyr og tristan koma í næstu viku og verða... í viku.... hlakka ekkert smá til að fá þau. Þau leigja hús, eða höll er betra að segja, á amager. þá get ég einmitt fengið góðan mömmu mat mmmmmmm ![]()
og já gleymi ég aðalfréttinni maður....
ég, sigrún og guðný erum komnar með íbúð, á GEGGJUÐUM stað, nánar tiltekið við nyhavn og kongens nytorv
3 stór svefnherbergi, ágætis eldhús og baðherbergi, þvottavél og ef við viljum getum við fengið þurrkara og uppþvottavél. ógó flott... við ætlum aðeins að mála hana og svo flytjum við inn.... JEIIIII ![]()
en allavega ég verð að þjóta set inn myndir af íbúðinni við tækifæri...
hilsen fríða![]()
Loksins heima.... :D
.... allavega þá er þetta búið að vera afskaplega rólegt hérna, fór að vísu á ball með Katli bróðir og Droplaugu vinkonu á föstudaginn í Ölfushöllinni, Magni og á Móti sól voru að spila!!! újeeee... þetta var frekar misheppnað ball að mínu mati... þeir sem að héldu þetta bjuggust við að kofinn yrði stappaður og það var sko opið inn í reiðhöllina sjálfa og 2 barir þar + stóri barinn í anddyrinu en það hefði verið nóg að hafa bara opið inn í litlu salina 2!!!!!!!
en við vitleysingarnir skemtum okkur ágætlega og hittum náttlega fullt af fólki sem við þekktum... Annas var þetta eina djammið mitt hérna og ég get nú ekki sagt að ég hafi misst af miklu
Droplaugu fannst ég kvarta e-ð mikið undan því hvað áfengið væri dýrt, ég kannast samt ekkert við það
en annas er þetta bara búið að vera rosalega notarlegt... er búin að vera mikið með Tristan og Natan og svo fór ég nú að kíkja á tvíburana í gær en annar þeirra grét bara ef hann sá mig...
ég verð greynilega ekki vinsæl á þeim bæ
Í morgun fór ég til Sólons mágs upp í vinnu og fékk að fara á hestbak og það var ÆÐISLEGT!!! ég hef ekki komist á bak í lengri tíma, tel ekki með það skipti sem ég fór á bak í Dk því að það telst nú varla sem hestur....
ég ætlaði að taka fullt af myndum en myndavélin mín er búin að vera að stríða mér en ég er þó búin að taka nokkrar þær koma bara inn seinna...
en ég ætla að fara að njóta seinasta mömmumatsins ...
(sko hekla ég bloggaði víst...!)
ég er ekki lélegur bloggari þið eruð bara svo léleg ad kommenta... !:)
jæjaþá er komið að því að maður komi að kíkja í heimsókn heim til Íslands... :) éger alveg farin að hlakka svoldið mikið til að koma og sjá alla saman aftur
er samt ekkert búin að plana neitt sérstakt þannig að þetta verður bara svona allt að ráðast, þannig að ef að einhver er með einhvarja uppástungu að einhverju skemtilegu meigið þið alveg láta mig vita...!!!
ALLAVEGA þá er bara allt gott að frétta héðan. Það er búið að vera svo ógeðslega gott veður herna að maður er bara á stuttermabol og pilsum að spranga um í kongens have með bjór og nesti
Bara nice (nacy fyrir gunnhildi, hehe) ...
Mamma átti líka afmæli þann 21. mars.... TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ GAMLA MÍN
hún varð 50 ára ung (maður má víst ekki segja gömul) en ég er allavega búin að finna THE afmælisgjöfina handa þér
Just wait and see...
en þetta var allavega svona stutt blogg bara... ætla samt ekki að bloggar aftur ef fólk nennir ekki að kommenta ![]()
bless í bili...
blogga KANSKI næst á Íslandi !!! allt undir ykkur komið gott fólk!!!!
afsakið hlé...
ég fór í gær á e-ð svona matar og vín kynningu...
bara gaman... Vinnan fékk 4 miða og ég Veena, Elisabet og Frederik skelltum okkur. Maður gat smakkað alskona mat og drukkið allt sem þú vildir, maður labbaði einimitt frekar oft framhjá coca-cola básnum...
OG svo kom náttlega það skemtilegasta af öllu fyrir þegar ég hitti manninn sem fann upp Hot ´n´ sweet... vá hvað ég var í skýjunum þá...
Er í fríi í dag og á morgun þannig að ég get legið í leti minni í allan dag...
En annars er voða lítið að frétta nema hvað að það fór að snjóa um daginn og það var bara eins og danmörk hætti að virka... það gengu nánast engir strætóar og ein lest keyrði af e-m 10, ég þurfti að taka metro í vinnuna og það gekk svo hægt að maður var náttlega allt allt of seinn... frekar pirrandi... en vonandi læra þessir danir að fara að skafa göturnar...
en þetta var þetta í bili allavega...
see´ya
ok það er búin að vera smá leti í gangi að blogga enda er ég búin að hafa svo ofsa mikið að gera;) hehe hmmm....
en ok eins og allir vita núna þá kom stjórn Mímis (ML) í stjórnaskiptaferð hingað til Köben... þau tóku þetta með stæl og vonandi skemmtu þau sér ógeðslega vel... :)
Ég hitti þau á fimmtudagskvöldinu og fór með þeim á smá djamm. Fórum á geðveikt skemtilegan stað sem heitir Kulør bar, borguðum 60 dkkr inn og fengum þá frían bjór til kl 1 og staupin kostuðu kun 5 kr.... ![]()
þetta var ógeðslega skemtilegt kvöld og það gleymist seint allavega hjá mér... TAKK FYRIR GEÐVEIKT SKEMTILEGT DJAMM OG ÞAÐ VAR ÓGÓ GAMAN AÐ HITTA YKKUR ![]()
Ég, Morten, Ella & Kristian, Edda og Sigrún hittumst á Old English bar og horfðum á Danmörk- Ísland leikinn![]()
þetta var án efa erfiðasta stund lífs míns![]()
Og að koma í vinnuna daginn eftir var helvíti...! ég var sem betur fer ekki búin að tjá mig neitt um þennan leik og passaði mig algjörlega að segja ekki neitt. Fékk ÞÓ nokkuð mörg skot á mig en það voru samt allir svo hissa að danir tóku okkur ekki bara í rassgatið, og að svona lítið land væri með svona gott lið...
en ég var einmitt í fríi núna um helgina, vorum búin að plana alveg þvílíkt djamm en það fór e-ð út um þúfur, sem er reyndar allt í lagi því ég á engan pening
en við kíktum allavega í partý til vina Ellu & Kristians á föstudagskvöldið með Sigrúnu og það var bara fínt...
Hitti síðan Guðný Þórfríði í gær og við settumst niður á ógeðslega litlu og sætu kaffihúsi/bar og spjölluðum e-ð en fórum svo bara snemma heim, takk fyrir það Guðný
Svo er mamma hennar Ellu líka flutt hingað út og býr einmitt bara rétt hjá okkur... Ótrúlega gaman að fá hana hingað, það er viss öryggiskennd að hafa hana hérna![]()
En allavega þá er ég búin í bili...
Kærlig hilsen
Fríða ![]()
Nýjar myndir...
En ég vildi bara segja að ég var að setja inn fullt af myndum endilega skoðiði... og þið meigið alveg endilega fara að kommenta sko...!!!
svín eru svo sæt tegar tau eru hvolpar....!!!
ég og ella sitjum inn í stofu og bídum hreinlega ad loftid hrinji á okkur, tad er nebblega verid ad taka til á háaloftinu hérna í blokkinni og tad fer sko EKKI framhjá okkur tví vid búum á efstu íbúðarhæðinni...
Það er nú svo sem ekkert svo rosalega mikið að frétta héðan, ég er búin að vera bara að vinna (eða svona e-ð, er búin að vera með e-n voða kvíðahnút í maganum og get bara ekkert sofið þessa dagana..
En eina nóttina sem ég var svona e-ð að ná að sofa fór mér allt í einu að dreyma um pizzuveisluna hjá Kamel (ML) og ég heyrði köllin í þeim og mér fannst eins og þeir væru að komast inn í blokkina mína og ég rauk upp (í draumnum) til að loka hurðinni svo þeir kæmust nú ekki inn...! VIð þetta vakna ég og lít á klukkuna... Svo var ég að tala við Andra bróðir á msn ... þá var pizzaveislan akkurat á sama tíma og þegar ég vakna!!!! HOW CREAPY IS THAT!!!!!?????!!!!!
En planið um helgina er allavega það að fara til Sigrúnar í kvöld þar sem ég, ella og sigrún vorum að pæla að blanda kokteila og hafa smá stelpukvöld og svo kanski/ pottþétt kíkja aðeins út á lífið...
En það er víst komin þvottatími hjá mér og ellu þannig að... got to run...
blæó....
jamm...
Ragnheidur var hjá okkur seinustu helgi, og skemtilegt ad segja frá tví ad ragga, ella og kristian voru einmitt rænd á fimtudaginn...tølvurnar og hledslutæki, síminn hans kristians og veskid hans og ellu, og myndavélarnar hjá stelpunum OG hledslutæki...jamm gaman tad...
EN já, svona er víst lífid madur verdur ad PASSA SIG í stórborgunum...
og já james, olga og selma til hamingju med afmælin um daginn...
hilsen...
Gleðileg jól og allt það... :D

margt er búið að gerast á seinasta ári og hérna er stutt yfirlit yfir það:
- útskrifaðist frá Menntaskólanum að Laugarvatni í maí æðislegur árangur þar... :)
- fór með æðislega bekknum mínum í útskriftarferð til Búlgaríu, og það var ÓTRÚLEGA gaman allan tímann... Væri alveg til í að endurtaka það aftur

- eignaðist 3 litla æðislega sæta frændur; Tristan Mána, og svo Ísak Eld & Óðinn Loga...
- Flutti til Danmerkur nánar tiltekið Kaupmannahafnar í september ásamt Gunnhildi vinkonu... bý núna með Ellu og Kristiani á Præstelængen... :)
En núna er maður búin að vera heima í fríi í ca. 2 vikur og það er bara búið að vera notalegt en ég fer einmitt út aftur á fimmtudaginn. En þá kemur einmitt Ragnheiður líka og Eva Lind vinkona og Raggi flytja líka út þá... svo koma Eva frænka og vinkona hennar líka út núna í janúar og svo VONANDI fá mamma og pabbi bústað hjá Rafiðnaðarfélaginu í Kaupmannahöfn og þá kemur öll familían út (mamma, pabbi, andri, ketill, þórey, sólon, natan og tristan)
Morten kom svo líka 26. des og fór svo aftur út 30. Við náðum að skoða landið aðeins og fórum á ball með hann á Selfossi (2. í jólum ballið). Hann var nú samt svoldið hissa á því hvernig við Íslendingar skemmtum okkur og ég verð nú eiginlega að vera sammála honum þar, en það var þó alveg gaman á balli sko...

en ella & Kristian hlakka til að sjá ykkur og við getum kanski farið að elda okkur e-ð almennilegt núna þegar við kunnum loksins á ofninn

p.s. myndir úr jólafríinu koma bráðum...
